Útlína, Gerðarsafn

Gerðarsafn – Listasafn Kópavogs Útlína  / Outline 06.04.2019-02.06.2019   Útlína er sýning á verkum úr safneign Gerðarsafns frá 1950 til dagsins í dag. Á sýningunni er útlínan notuð til þess að tengja verk þvert á miðla. Línan flæðir á milli teikninga, málverka og prentkverka og útlínan öðlast eigið líf í (þrívíðu) formi skúlptúra og rýmisverka. […]

Gerðarsafn – Listasafn Kópavogs
Útlína  / Outline

06.04.2019-02.06.2019

 

Útlína er sýning á verkum úr safneign Gerðarsafns frá 1950 til dagsins í dag. Á sýningunni er útlínan notuð til þess að tengja verk þvert á miðla. Línan flæðir á milli teikninga, málverka og prentkverka og útlínan öðlast eigið líf í (þrívíðu) formi skúlptúra og rýmisverka. Útlínan verður allt í senn: þráðurinn á milli verka, afmörkun og endaleysa.

Sýningin er hluti af +Safneigninni, þar sem gestum er gefinn kostur á að líta á bak við tjöldin og kynnast því sem að öllu jöfnu tilheyrir innra starfi safnsins. Unnið verður að rannsóknum á listaverkunum fyrir opnum dyrum og mun gagnagrunnur um verkin vaxa meðan á sýningu stendur. Á sýningunni Útlína má því sjá verk samhliða handteiknuðum leiðbeiningum, ljósmyndum, viðtölum við listamenn og skráningarspjöldum.

 

Listamenn:

Anna Hallin | Barbara Árnason | Gerður Helgadóttir | Hólmfríður Árnadóttir| Hrafnkell Sigurðsson | Hreinn Friðfinnsson | Katrín Sigurðardóttir | Kristján Davíðsson | Rúrí | Theresa Himmer | Valgerður Briem

 

Sýningarstjórar:

Brynja Sveinsdóttir & Hrafnhildur Gissurardóttir