Gróður jarðar og hugarflugs

GRÓÐUR JARÐAR OG HUGARFLUGS Safnasafnið Svalbarðseyri við Eyjafjörð 6. júní til 13. september 2020   Sýningin er í meginatriðum unnin úr safneign, í þeim tilgangi að kynna listaverk og gripi eftir sem flesta höfunda, hugmyndir þeirra, aðferðir og efnisval. Nokkrum var boðið að senda inn framlag. Sum verkin í eigninni eru þess eðlis að þau […]

GRÓÐUR JARÐAR OG HUGARFLUGS

Safnasafnið

Svalbarðseyri við Eyjafjörð

6. júní til 13. september 2020

 

Sýningin er í meginatriðum unnin úr safneign, í þeim tilgangi að kynna listaverk og gripi eftir sem flesta höfunda, hugmyndir þeirra, aðferðir og efnisval. Nokkrum var boðið að senda inn framlag. Sum verkin í eigninni eru þess eðlis að þau eiga varla erindi á sýningar nema ákveðið tema ríki því þau standa ekki sjálfstæð, en eðlilegt að gefa þeim tækifæri því stundum bera þau með sér eitthvað óvænt sem styður við áhrifaríkari verk.

 

Sýningarstjóri: Níels Hafstein

Á sýningunni eru 110 listaverk og gripir eftir 37 konur, 37 karla og 14 ókunna höfunda. Meðal verka er nýtt verk eftir Rúrí.