Myndlistarsýningin Nr.1 Umhverfing
á Sauðárkróki.
1. júlí til 10. september 2017
Sýningarhúsnæðið er annars vegar Safnahúsið á Sauðárkróki, og hins vegar Heilbrigðisstofnun Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Með þessari sýningu er gerð tilraun til að færa nútímamyndlist á staði þar sem hún er alla jafna ekki aðgengileg.
Það er skoðun okkar sem stöndum að sýningunni að allir landsmenn eigi rétt á því að hafa aðgang að nútímalist í sínu nærumhverfi, hvar sem þeir búa, það séu sjálfsögð mannréttindi.
Anna Eyjólfs er sýningarstjóri og listamenn sem eiga verk á sýningunni eru: Anna María Sigurjónsdóttir – Auður Aðalsteinsdóttir – Finna Birna Steinsson – Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson – Jóhannes Atli Hinriksson – Kristín Reynisdóttir – Ragnheiður Ragnarsdóttir – Ragnhildur Stefánsdóttir – Rúrí – Sólveig Baldursdóttir – Valgerður Bergsdóttir – Þórdís Alda Sigurðardóttir – Anna Eyjólfs
Katalógur sýningarinnar fæst í Safnahúsinu
meira á facebook